3. nóvember 2009
Skráð klukkan: 17:13
jæja, þá er fluttningurinn til Álaborgar byrjaður. Hafþór farinn að keyra dót í húsið okkar þegar hann fer í vinnuna og ég byrjuð að pakka niður (igen).
Okkur hlakkar mikið til að flytja og koma okkur VEL fyrir í nýja húsinu og koma reglu á líf okkar.
Þórður Freyr kveður Dalgasskolakrakkana á föstudaginn og fer í heimsókn í Mellervangskolann á mánudaginn.
Nú er bara að athuga hvað verður um hana Rannveigu Ásu, fer hún á vuggestue eða til dagmömmu? En hvert sem hun fer er ég viss um að henni á eftir að líða mjög vel.
21. október 2009
Skráð klukkan: 17:19
Alveg ótrúlegt enn satt, Rannveig Ása tók miðdagslúrinn sinn í dag og svaf frá kl.12:30 til kl.17:30 en þá vakti Hafþór hana. Hún er vön að sofa í mestalagi 2 tíma og það skrítna við þetta er að hún er ekkert slöpp eða með hita, hmmm…vonandi er hún samt ekki að verða veik…..
En annað, á morgun fær Þórður Freyr kennaraheimsókn. Kennarinn hans, hún Stine og stærðfræðikennarinn hún Maja koma hingað kl.14:00 og það er mikil spenna í gangi. Þetta gera þær einu sinni á ári og er svona nokkurs konar foreldraviðtal sem fram fer heima hjá börnunum. Okkur finnst þetta mjög sniðugt…..
Annars er allt fínt að frétta, jólapakkarnir og jólakortin næstum því tilbúin til sendingar til Íslands og bumbukrílið stækkar og stækkar og sparkar og sparkar…..
9. október 2009
Skráð klukkan: 17:05
Í dag voru allir skólar í Danmörku með sitt árlega hlaupaátak.
Þórður Freyr tók auðvitað þátt í því með bekknum sínum 1.A og hljóp hann 9 kílómetra á 2,02 klukkutímum. Ekkert smá flott hjá honum. Hann fékk Diploma skírteini fyrir
6. október 2009
Skráð klukkan: 13:04
…af nýja erfingjanum. Ég fór í sónar til Herning í dag og fékk þessar fínu myndir af bumbubúanum.
